Ert´ekki að Jóga?
31.03.2007 16:38:08 / Eyland

Er þetta allt?

Jó peebs!

Var að hugsa um að gera bara ekki neitt í gær og horfa á Along came Polly sem ég by the way búinn að sjá bara OF oft en ákvað svo bara að drífa mig. Þurfti þvílíkt að ýta ofan í mig fyrsta bjórnum og sá pínu eftir því að hafa ekki tekið rósavín en ég meina hey, thats life skiluru. Hjörtur geðveikt eitthvað: jú mar og ég bara eitthvað: vá fokk er ekki að meika það en Hjörtur bara: þetta er bara veggur sem þú verður að klifra yfir og ég bara eitthvað: síðan hvenar byrjaðir þú að nota myndlíkingar (geðveikt lame komment, ég veit) og svo var ég bara orðinn hress og eitthvað. Ætlaði að fara í brúnu flauels en út af því að rauði bolurinn var óhreinn ákvað ég að fara í brúnu flauels með stóru riflunum. Ok, veit ég er vain. Fór svo niður í bæ og hitti Sigga P sé ég hef ekki hitt í eydjes. Hann sagði að liðirnir væru farnir úr hárinu á mér og ég bara like as if. Vildi samt ekki vera að hella of mikið í mig því ég vildi ekki vera off í dag. Þurfti geðveikt að dú stöff. Þannig var bara kominn snemma heim.

Ég vaknaði í morgun og horfi á Along came Polly sem er með Jenifer, sem er æði, nema að ég las að hún væri búin að fara í þrjár botox og svo hef ég líka heyrt að hún sé rosalega picky og erviður kúnni á veitingastöðum. Ég meina OK, hún er kannski celeb en ég meina hún er bara sit-com en ekki Holly eins og t.d. Julia Roberts. Svo fór ég niður í bæ og ætlaði til að kaupa tannkrem því tannkremið mitt var like soooo búið og hvað heldurðu ég kom út úr Bónus með þúst skyr, banana, sultu og eitthvað en ekkert tannkrem. Omægod, er Hægt að vera jafn glær. En vá verð að fara gera eitthvað. Ætla að fara læra til svona fimm og kannski út að hlaupa. Var að pæla í að elda mér ofnrétt í kvöld og fínt. Verð samt að muna að fara út í Lyfju á morgun, má ekki gleyma því. En anyways, ég heyri í ykkur.

Þessar tuttugu sekúndur sem þú notaðir í að lesa þessa færslu færðu aldrei aftur. Þær er farnar að eilífu, týndar og tröllum gefnar, þátíð.

Með öðrum orðum: X => Start => Turn of the computer => Turn off.

Svona snáfaðu!

SNÁFAÐU, sagði ég!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 20:31:32 / Eyland

Kæru vinir og vandamenn

Af hverju þvær maður á sér hendurnar eftir að maður pissar?

Prófaðu að einbeita þér af því að hugsa ekki um bleikan fíl.

Þetta reddast.

Einhverstaðar inná íþróttadeild fréttablaðsins er mikill meistari falinn. Meistari þessi heitir Henry en ég kann honum ekki meiri skil. Ég stend engu að síður í mikilli þakkaskuld við Henry. Honum tókst nefnilega að lauma inn einhverju mesta hugleiðsluverkfæri seinni tíma í einum af skrifum sínum. Það er betra en að hugsa um eina hönd klappa og ennþá betra en að drekka úr tómum bolla. Núna þyl ég sömu möntruna ég á hverju kvöldi: ‘Staðan var aðeins skárri fyrir leikinn síðasta föstudag en þá kom Rússinn Zakharov aftur í hópinn en hann sleit krossbönd eftir að hafa aðeins spilað í nokkrar mínútur og verður því ekki meira með í vetur.’ Takk fyrir mig Henry.

Af hverju skeinir maður sér á rassinum en þvær á sér hendurnar?


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 16:34:18 / Eyland

Tvöþúsundogsjö

Sælir tunglsléttuúlfar,

Mér finnst það ákaflega viðeigandi að kveðja árið 2006 með lítilli spá fyrir 2007. Ég vil taka það fram að þetta eru bara hlutir sem maður hefur heyrt af götunni, ég er ekki með neinar insider upplýsingar.

Trends fyrir 2007

Íslenski markaðurinn. FL kaupir í Icelandic Group, Straumur Burðarás kaupir í Mosaic, Baugur Group selur í FL Group, HB Grandi selur í Flögu og svo framvegis og svo framvegis. Ómar Ragnarsson Group fer ekki á hausinn enn eitt árið í röð.

Heimsmarkaðurinn. Lazytown verður hittari í US of A, sem endar með yfirtöku af Disney, Magnús Scheving fær Nóbelsverðlaun...allt á næsta ári.

Fettish. Nýjasta fettishið verður að sjálfssögðu að stinga oststykki upp í þvagrásaropið og sleppa músinni sem að þú heldur á í vinstri hendinni lausri. Compliments of mister Cohen. (Full disclosure: ég er það viss um þessa spá að ég hef nú þegar prófað þetta tvisvar, mæli með Parmesan).

Tónlist. Stærstu hreyfingarnar í tónlistargeiranum verða þær að Britney byrjar með raunveruleikaþátt, Robby Williams talar inn á teiknimynd og Beyonce gefur út barnabók.  David Bowie kemur með endurkomu ársins þegar að hann verður sendur út í geim af kínversku geimferðarstofnuninni, verkefni sem er leitt af hinum heiðvirta Major Kwan Sun Tong. Stairway to Heaven, Boheamian Rapsody, Sweet Child O Mine, Hotel Calefornia, Under the Bridge og Your song verða öll coveruð af ungum kvenkyns singer/songWriters og/eða boy/girlböndum.

Pólitík. Stjórn Byrgisins gerir það eina rétta í stöðuni og stofnar nýjan stjórnmálaflokk. Að sjálfssögðu verður hægt að fylgjast með því að horfa á raunveruleikaþáttinn sem verður gerður í sambandi við stofnum flokksins.

Tæknihittarar. Er í vandræðum með þennan lið en er nokkuð viss um að brand name-ið verði iEitthvað™ svona.

Nokia setur nýjan síma á markaðinn með hinum ýmsu fítusum, svo sem: MP3-spilara, tölvuleikja-console, digital myndavél, voice recorder, msn og skype, dagatal og skipuleggjari, e-mail og netvafrari, reiknivél, bóhaldskerfi, GPS, útvarp, veðurstöð og videospilara. Seinna átta þeir sig á því að þeir gleymdu að hugsa um þann möguleika að geta hringt með símanum.

Hvað haldiði, spot on?






















» 7 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 15:40:12 / Eyland

Don Eyland

Ég vil óska alnafna mínum og afa til hamingju með afmælið í gær. Ég veit ekki hvað leyndarmálið hans er en kallinn verður myndarlegri með hverju árinu!



» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 15:33:34 / Eyland

Pósturinn

Hvernig getur það staðist að það að senda 20 kíló með póstinum til Hollands kosti 10.000 krónur en að senda sömu þyngd með póstinum til Íslands kosti 37 Evrur? Getur einhver útskýrt þessa hagfræði fyrir mér?


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 16:11:41 / Eyland

Hans Leijerzapf

Ǘȍ牢̀⌀ϭ ǕȌϩ䈀н닰ϖ

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 15:49:23 / Eyland

Um skaufa og skinkur

[…], there is clearly more than a coincidental relationship between [Frederick ] Taylor’s anal-compulsive approach to life and the mode of organization embraced by scientific management. And this raises a number of intriguing questions about this and other modes of organization. To what extent is it possible to understand organization as an external manifestation of unconscious strivings, as suggested by Freud’s theory of the links between culture and the unconscious? To what extent do our modes of organization institutionalize defense mechanisms relating to repressed sexuality? To what extent can we understand the bureaucratic form of organization generally as a manifestation of anal-compulsive preoccupations? To what extent do other more flexible, organic, dynamic organizational forms institutionalize preoccupations concerned with other modes of repressed sexuality?

These questions may seem rather farfetched, but if we wish to push this perspective far enough, a good case can be made for the idea that organization is a form of repressed sexuality. We have already mentioned the Freudian view emphasizing how social order develops alongside libidinal repression, but there are other arguments as well. For example, if we go back to the Middle Ages we find that few distinctions were drawn between public and private life, and that open displays of sexual behaviors presented a major problem. Manuscripts from the seventh and eight centuries reveal that punishments for different classes of sexual misconduct were calculated in elaborate detail. Some of the most extreme offenses called for castration, while others required extensive penitentials. Thus a monk found guilty of simple fornication with unmarried persons could expect to fast for a year on bread and water, while a nun could expect three to seven years of fasting and a bishop twelve years. The punishment for masturbation in church was forty days’ fasting (sixty days’ psalm singing for monks and nuns), while a bishop caught fornicating with cattle could expect eight years’ fasting for a first offence and ten years’ fasting for each subsequent offence.

The very fact that these schedules existed indicates the extent to which these behaviors posed an ever-present problem to the order and routine of these early forms of organization. And it is more than interesting that some of the earliest examples of organizational rules and regulations of which we are aware give such close attention to the control of sexuality.

- Úr bókinnni Images of Organization eftir Gareth Morgan

Að þessu gefnu þá get ég ekki annað en spurt hvort að þessar reglur hafi verið settar í forvörn eða til þess að leysa úr vandamálum. Ég sé fyrir mér tvö senaríó:

Senaríó Eitt
Páfinn situr í sloppnum sínum inn í risastórri setustofu og er að smyrja sultu á croissantið sitt á meðan að hann gluggar í uppáhalds passíusálminn sinn. Svartklæddur kardínáli kemur hljóðlega inn í herbergið og gengur rösklega í átt til Páfans. Svitaperlurnar renna af enninu og hann á erfitt með að fela óróleika sinn.
‘Yðar hátign, það voru að berast fréttir frá frá klaustrinu í Strassburg í Frakklandi. Það var annar munkur gómaður í miðjum klíðum með ungri konu.’
Páfinn sem var kominn vel á leið með það að taka fyrsta bitann af croissantinu færir athyglina yfir á kardínálann. Sultudropi dettur niður á passíusálminn.
‘Gift?’
‘Nei, yðar hátign. Guði sé lof!’
Páfinn leggur frá sér morgunmatinn og þurkar sér um munnvikinn með silkiklút.
‘Það veit Guð, minn kæri Cardoso, að þessi guðdómlegi vegur í átt að sönnum hreinleika er ekki auðveldega genginn.’ Cardoso kinkar kolli samþykjandi á meðan að Páfinn segir, ‘og ég hef aldrei farið leint með það að þegar að ég var ungur og órólegur og þörfin á samræði við hitt kynið var orðin óbærileg, þá kom það fyrir að ég sá mig tilneyddan til þess að röllta út í fjárhús með hátt leðurstígvél.’
Cardoso kinkar kolli með vatn í munnvikunum, ‘rolla...hátt leðurstígvél... true...true...’
‘En eftir allar skýrlunar sem við höfum fengið upp á síðkastið,’ heldur Páfinn áfram,’ af klámfenginni hegðun...munkar að fróa sér í Kirjunni, nunnur að...nunnur að...’ Páfinn hristir hausinn og sínir kardínálanum lófann eins og hann hafi það ekki í sér að segja meir. ‘Einhverstaðar verðum við að draga mörkin, Cardoso,’ segir hann í afgerandi tón.
‘En hvað, yðar hátign? Hvað getum við tekið til bragðs?’ Svarar kardínálinn.
‘Reglur og refsingar, minn kæri Cardoso. Reglur og refsingar.’ Segir páfinn í vingjarnlegum tón. ‘Náðu snöggvast í blað og penna, Cardoso og skrifaðu þetta niður: Reglur og refsingar í sambandi við klámfengna hegðun innan Kirkjunnar. Regla eitt: Ef þegn Kirkjunnar gerist uppvís af því að...’

Senaríó Tvö
Páfinn labbar inn í fundarherbergi þar sem kardínálarnir sitja við langt og mikilfenglegt eikarborð.
‘Allir mættir,’ segir Páfinn um leið og hann fær sér sæti. ‘Ah, flott. Heyriði, ég hef verið að hugsa dálítið undanfarið...búinn að vera vellta hinu og þessu fyrir mér...og hérna, við verðum að koma í veg fyrir klámfengna hegðun innan Kirkjunnar okkar, strákar.’
Það fer klíður um herbergið þar til að einn af háttsettari kardínálunum tekur til máls.
‘Fyrirgefið, yðar hátign en ég verð að viðurkenna fáfræði mína. Mér hafa ekki borist neinar fregnir um klámfengna hegðun innan kirkjunnar...’
Hinir kardínálarnir horfa á hvorn annan og kinka kolli samþykjandi.
‘Nei gamli,’ svarar Páfinn um hæl, ‘alveg óþarfi að afsaka sig. Ég hef heldur ekkert heyrt beint, skilurðu? Ég er heldur ekki að segja að það sé allt vaðandi í kynlífi meðal starfsfólks Kirkjunnar. Ég er meira að segja að það er vert að hugleiða þetta. Ég meina, strákar, við erum frumkvöðlar, við stöndum á barmi tímamóta í mannkynssögunni, og tilheyrandi nýstálegustu og nýbreittustu stofnum veraldar, ber okkur sú skilda að vera á tánum...á tánum strákar! ALLTAF á TÁNUM!
‘Erum við ekki af hlaupa af okkur skónna hérna,’ segir einn af yngir kardínálunum.
Auðsjáanlega pirraður horfir Páfinn á unga kardínálann með augnaráði sem gæti drepið.
‘Pop quiz hot shot: eftir matarhléið á efitir kemur sendiboði askvaðandi hingað inn með þær fréttir að nunnurnar í Parma tekið upp þá iðja að dreita á hinum loðna bikar, what do you do? What...DO...you...DO???
Þrátt fyrir ungan aldur gerir kardínálinn sér engar grillur um hvernig pólitík Vatíkansins virkar og veit hvenær hann á að þegja. Einn af eldri kardínálunum ræskir sig og segir með dýsætri röddu: ‘En hvað myndirðu leggja til, yðar hátign?’
Páfinn setur upp einn af sparisvipunum til merkis um það að hann sé af fara segja eitthvað merkilegt.
‘Ég var að hugsa um einhverjar reglur...eitthvað refsingakerfi allaveganna. Sérstaklega fyrir biskupa sem hafa samræði við nautgripi.’ Hann horfir í tómið. ‘Hmm, mér myndi líka það ílla ef að biskupar myndu hafa samræði við nautgripi,’ segir hann meira við sjálfan sig heldur en við fundarmeðlimina.
Það er algjör þögn í herberginu þar til Páfinn heldur áfram: ‘Hvernig hljómar þetta: Biskup sem er gómaður í samræði við nautgrip má búast við refsingu hjóðandi upp á átta ára föstun?’ Páfinn horfir yfir salinn í leit að samþykki. ‘Ha? Huh?’
‘Myndi þetta eiga við um öll tilvik, yðar hátign,’ segir einn af kardínálunum sem hingað til hefur haldið sig í bakgrunninum, ‘eða myndi refsinginn hækka ef að þetta væri ekki í fyrsta skiptið sem viðkomandi aðili væri gómaður.’
‘Þetta er rétti andinn Cardoso!’ Segir páfinn, yfir sig hrifinn. ‘Það eru svona menn sem kirkjuna vantar. Strákar sem eru á tánum. ALLTAF á TÁNUM!’


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 10:59:08 / Eyland

Ravens embarrass Steelers and love every minute of it

There is no pleasure in having nothing to do; the fun is in having lots to do and not doing it.
  - Mary Wilson Little

http://www.mannenpret.nl/content/filmpjes/56-22/Moonwalk.wmv


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 23:21:00 / Eyland

Shakma

Það var um klukkan tíu í morgun að ég steig upp í yfirfullan strætó í Tilburg. Ég kom mér fyrir á svæði sem var autt en sá persónlega svæðið mitt minnka allt þar til að strætóinn var orðinn það fullur að hann hefði fyllt sardínudós af öfund.

Nú, þegar við tókum af stað verður innilokunarkenndin ekki beint skárri. Málið var nefnilega ég var vandræðanlega meðvitaður um hvað kynfærin mín voru óviðeigandi nálægt afturendanum á stúlkunni fyrir framan mig. Og þar sem strætóar eiga það til að hægja og hraða á sér langaði mig ákaflega til þess að komast hjá því að bömpa mjöðmunum í greyið stúlkuna í hverri einustu hraðabreytingu. Hefði ég tekið eitt skref aftur á bak, hefði ég bakkað beint í klofið á stráknum fyrir aftan mig. Ekki skárra. Ákveðið lag með the Stones kom upp í hugann.

Nú voru góð ráð dýr, og heilaveskið ansi þunnt í morgunsárið. Ég var með hliðartösku og ákvað að smeygja henni fram fyrir mig og geta þannig notað hana til þess að skýla klofinu. Þessi hugmynd kom mér úr öskunni í eldinn, því það sem áður var pínu bil á milli okkar var nú fyllt upp af hliðartöskunni, þannig að taskan var klínd upp við bakhluta aumingja stelpunnar.

Það var engin leið að koma töskunni aftur til baka, þar sem allar leiðir voru lokaðar. Og þegar að ég hélt að þetta gæti ekki orðið mikið vandræðanlegra, byrjaði nefið á mér – af ástæðum sem mér eru ókunnugar – að blístra. Þannig að nú er ég klíndur upp við aftureindann á stúlkunni og ég er að blístra með nefinu upp í eyrað á henni. Kjánahrollur.

Víðáttan sem tók við mér þegar ég flaut út úr strætónum var virkilega vel þegin.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 15:41:14 / Eyland

The Streets

It was supposed to be so easy
Just take back the DVD, withdraw that extra money
Tell mum I wouldn't be back for tea, then grab my savings and hurry
So first to get the film back in time, to avoid that big fine
I had to do a fast hill climb, but a faster decline
But I flew a bit quick, arms like a lunatic
Had to stop for a few ticks, I started feeling sick
Got to the video shop in a state, but chuffed it wouldn't be late
Only when he flicked open the case, I'd left the disc at my place
Today I've achieved absolutely nowt
In just being out of the house, I've lost out
If I wanted to end up with more now
I should've just stayed in bed, like I know how
So I failed on the DVD, but I still had to get the money
Tell mum I couldn't make tea, get the saving and then hurry
Rushing to the cash machine, still a bit mashed and lean
Then of course a mandatory car, drives by and splashes me
Get there the queue's outrageous, ladies taking ages
My rage is blowing gauges, how longs it take to validate your wages?
At last my turn comes, press the 50 squid button
Insufficient funds

Today I've achieved absolutely nowt
In just being out of the house, I've lost out
If I wanted to end up with more now
I should've just stayed in bed, like I know how
So I failed on the DVD, couldn't withdraw any money
But I still had to call mum, get the savings and hurry
So to call mum so that, I could tell her I cant go and that
At least I remembered my phone man, I didn't know her number offhand
Where's my phone have I got it, Oh this is a crock of shit
I lost the fucking thing, oh here it is in my pocket
But the batteries nearly flat, gotta call quick snap
Aww shit, the battery is flat
Today I've achieved absolutely nowt
In just being out of the house, I've lost out
If I wanted to end up with more now
I should've just stayed in bed, like I know how
So Ive failed on the DVD, couldnt withdraw any money
Or call mum about tea, I'll have to get the savings and hurry
But where was the money, I knew I'd left it on the
Side, next to the telly, this is not even funny
I left it in the living room, ready to pick up as soon
As I passed through, on the way out to the rendevous
So the shoebox full of money, just disappearing from me
Is not what I call funny, a grand dont come for free
Today I've achieved absolutely nowt
In just being out of the house, I've lost out
If I wanted to end up with more now
I should've just stayed in bed, like I know how

(Oi, soaked to the bone in my jeans, do you want me to stop?
I imagine my mums weaping right now
And the thousand pounds you swore, that I left on the table this morn
Has simply disappeared before my eyes, his eyes and yours
And I'm a thousand pounds poorer, a hundred thousand pennies, no more
A thousandth of a million squid, or two monkeys or a whole fifty scores
Gone withdrawn from my life, the money is no more for sure)
It was supposed to be easy


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 14:54:06 / Eyland

Auðveldara enn að skrifa

I once wanted to become an atheist, but I gave up - they have no holidays.
- Henny Youngman

The point of quotations is that one can use another's words to be insulting.
- Amanda Cross


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 16:26:42 / Eyland

Bhagavadgita

Þið hafið sjálfsagt verið að rífa í hárið á ykkur og vellta því fyrir ykkur hvað væri að valda þessu aðgerðaleysi mínu í heimi bloggsins...eða ekki.

 

Allaveganna, þá hefur eitthvað vatn runnið til sjávar, sumt vert frásagnar og annað ekki.  

 

 

 

Outdoration

Ferðin til Sóveníu var upp á marga fiska. Rigning, aur, leðja, rigning, bleyta og bara mjög gaman.

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Amma og afi voru í heimsókn. Word up, word up. G to the Schnitzel.

Kjarri kom svo í heimsókn til þess að kanna aðstæðurnar hérna í Niðurlöndum. Kjartan er náttúrulega drengur góður og gestur jafnvel betri.

Það vildi svo skemmtilega til að hinn Ástralski Xavier Rudd hélt tónleika í Eindhoven á meðan að Kjarri var hérna og við litum á hann. Helviti gaman.

 Xavier Rudd á youtube

Keller Williams hitaði upp fyrir Xavier og var með magnað show.

 Keller Williams á youtube

Kjartan var svo góður að gleyma iPodinum sínum, mér ekki til mikillar óánægju (er það ekki rétt svona, Kjarri?). Þannig að ég er búinn að vera ofkeyra iPodinum hans núna síðustu daga. Þar á meðal með Ricky Gervais podköstum, sem væru ekki það sem þau eru ef ekki væri fyrir Karl Pilkington. Snillingur!

Karl Pilkington á google video











 







 



 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5